Tónleikar á afmælisdegi Kópavogs
11-05-2025 kl. 16:15 - Salurinn í Hamraborg
A sveit verður með stutta tónleika fyrir utan Salinn í Kópavogi, sunnudaginn 11. maí á afmælisdegi Kópvogsbæjar.
Bærinn okkar verður 70 ára þennan dag og við spilum nokkur vel valin lög í tilefni dagsins.
Veðurspáin fyrir sunnudaginn er þokkalega góð og ekki gert ráð fyrir úrkomu, svo mig langar að biðja alla A sveitina að vera í litríkum, sparilegum sumarfötum á tónleikunum. Bara muna að klæða sig eftir veðri og gera ráð fyrir því að það er alltaf svolítill vindstrengur á planinu fyrir framan Salinn.
Mæting er beint á tónleikastað kl. 15:50 á sunnudaginn.
Slagverk, bassamagnarar og nótnastólar verða á staðnum.
Krakkarnir mæta með hljóðfærið sitt og nóturnar.
Við gerum ráð fyrir að spila í u.þ.b. 25 mínútur, fer samt aðeins eftir veðri og stemmingu 😊
.jpeg?width=160&height=160)