Aukaæfing A sveitar í Háskólabíói
30-10-2024 kl. 18:20 - Háskólabíó
A sveit er með aukaæfingu í Háskólabíói miðvikudaginn 30. október, á undan hausttónleikunum.
Tilgangur æfingarinnar er að sýna hljóðfæraleikurunum hvar þau sitja, prófa hvernig hljómsveitin hljómar í svona stóru rými og æfa framkomu á tónleikum.
Börnin fara ekki heim eftir æfinguna og fá hressingu í boði foreldrafélagsins okkar áður en þau stemma hljóðfærin sín og ganga inn á svið.