SPWI Teachers
Kristín Þóra Pétursdóttir
Kristín Þóra Pétursdóttir lauk B.Mus. prófi í klarínettuleik frá Listaháskóla Íslands árið 2018 og M.Mus.Ed. gráðu til kennsluréttinda í söng- og hljóðfærakennslu frá sama skóla 2026. Kristín hefur starfað sem klarinettkennari frá árinu 2014 og kennt m.a. við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, Skólahljómsveit Grafarvogs, Tónlistarskóla Kópavogs og Skólahljómsveit Kópavogs. Kristín hefur komið víða fram sem klarínettu- og bassaklarínettuleikari, m.a. með Kammersveit Reykjavíkur, kammerhópnum Caput, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og hljómsveit Íslensku óperunnar svo eitthvað sé nefnt. Auk tónlistarmenntunar er Kristín með M.A.-próf í íslenskri málfræði frá Háskóla Íslands.
Kennslugreinar:
Klarínett
Hafa samband
Netfang: kristin.thora@kopavogur.is